Aðrar CrossChem vefsíður:
AdBlue® Station Network Market AUS40 InternationalRegional offices
Meira en áratugur af nýsköpun hefur gert okkur að leiðandi sérfræðingum með víðtæka reynslu og þekkingu.
Síðan árið 2007 hefur CrossChem sannað sig sem áreiðanlegur og
samkeppnishæfur framleiðandi á bæði innlendum og alþjóðlegum
mörkuðum. Með alþjóðlegri sölu og dreifingu, nú í meira en 60 löndum
höfum við tryggt stöðugan vöxt í meira en 17 ár.
Einn af samkeppnislegum styrkleikum okkar fyrirtækis er getan til að
þróa nýjar vörur og búnað með eigin efnafræðingum og
verkfræðingum. Nokkrar af nýstárlegu lausnum okkar hafa hlotið
alþjóðleg verðlaun og viðurkenningar.
Með því að einblína á framleiðslu vara sem draga úr losun
gróðurhúsalofttegunda frá samgönguiðnaði höldum við tryggð við
hugmyndafræði okkar um sjálfbærni í rekstri. Þannig tryggjum við að
starfsemi okkar og vörur séu umhverfisvænar og styðji við markmið
okkar um að minnka heildar umhverfisáhrif iðnaðarins almennt. Við
hlustum á þarfir viðskiptavina okkar og svörum eftirspurn með því að
bjóða oft upp á sérsniðnar lausnir sem ekki er að finna annars staðar.
Hröð viðbrögð og sveigjanleiki gagnvart þörfum viðskiptavina eru
lykilþættir í áframhaldandi þróun starfseminnar.
Vaxandi eftirspurn eftir vörum CrossChem hvetur okkur áfram og veitir
okkur innblástur til að halda áfram að efla og stækka starfsemi
fyrirtækisins. Við höfum háleit markmið og skýra framtíðarsýn um
frekari vöxt og þróun CrossChem.
– Richard Anderson
SIA CrossChem, stjórnarformaður
CrossChem Ísland er íslenskur efnavöruframleiðandi sem sérhæfir sig
í framleiðslu og dreifingu á AdBlue® og AUS40.
Við erum hluti af CrossChem samstæðunni, sem er leiðandi efnavöruframleiðandi á heimsvísu, og nýtum því alþjóðlega
sérfræðiþekkingu og nýjustu tækni við framleiðslu og sölu á sjálfbærum og umhverfisvænum efnavörum. Með þessu tryggjum við stöðugt framboð á hágæðavörum með minna kolefnisspori fyrir bæði
íslenskan og alþjóðlegan markað.
Við hjá CrossChem Ísland einsetjum okkur að stuðla að sjálfbærri þróun og vinnum markvisst að umhverfisvænum starfsháttum. Með því endurspeglum við grunngildi CrossChem samstæðunnar og leggjum okkar af mörkum til sjálfbærari framtíðar.
– Valdimar Freyr Freysson
Stjórnarformaður CrossChem Ísland